Meistari dagsins
18.nóvember: Grétar Örn Guðmundsson

Síðastur í seríu af meisturum dagsins er meistarinn Grétar Örn Guðmundsson. Grétar er á lokaári í Konunglega Arkítektaskólanum í Kaupmannahöfn og tekur hann þátt í Meistaramánuði annað árið í röð. Fyrir vinnuhesta og fagmenn eins og Grétar er ekki stór hindrun að rífa sig á fætur 5:45 en það getur verið heljarinnar áskorun að ná löngum og góðum nætursvefn. Tökum af ofan fyrir Grétari Erni!
Hver er ástæðan fyrir því að þú ákvaðst að taka þátt?
Ég er á kafi í lokaverkefninu mínu í arkitektaskólanum sem á að skila um miðjan desember. Mér fannst því upplagt að taka þátt í meistaramánuðinum og koma meiri reglu á daglegu rútínuna mína sem einkennist af mikillri tölvuvinnu og kaffidrykkju.
Hver eru þín helstu markmið í mánuðinum?
Að vakna fyrir kl 6 alla daga vikunnar, hlaupa 25 km á viku, sofa a.m.k. 7 klst á nóttunni og hjóla með hjálm (það þykir ekki sjálfsagður hlutur í Kaupmannahöfn).
Hvað hefur verið erfiðast?
Án efa að ná markmiðinu að sofa 7 klst á dag. Þetta hljómar auðvitað fáranlega, en síðastliðin ár hef ég verið að vinna mikið í skólaverkefnum fram eftir á nóttunni. Ég á ekki í neinum erfiðleikum með að rífa mig á lappir kl 5.45 en það hefur verið mjög erfitt að slökkva á tölvunni kl 23 á kvöldin og fara í háttinn. Verð að viðurkenna að það hefur ekki tekist á hverju kvöldi.
Skilaboð sem þú vilt koma á framfæri til annara meistara:
Meistaramánuðurinn er frábær hvatning til þess að tileinka sér betri og heilsusamlegri venjur! Hvet alla meistara til þess að halda áfram og viðhalda þessu nýja lífstíl þó að mánuðurinn klárist í næstu viku. Ég get allavega lofað ykkur því að þið munið sjá mig hjólandi um götur Kaupmannahafnar með hjálminn á hausnum.
Vefsíður sem gaman er að skoða í meistaramánuðinum:
Því miður er arkitektúr eina sem hefur komist að í huga mínum síðastliðna mánuði svo hérna eru tvær síður sem ég skoða alltaf með morgunkaffinu. http://www.archdaily.com/, http://www.dezeen.com/














